Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 18.10.–1.11.2022

2

Í vinnslu

  • 2.11.2022–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-197/2022

Birt: 18.10.2022

Fjöldi umsagna: 11

Drög að frumvarpi til laga

Forsætisráðuneytið

Almanna- og réttaröryggi

Drög að frumvarpi til laga um rýni á fjárfestingum erlendra aðila vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu

Málsefni

Með frumvarpinu eru lögð til heildarlög um fjárfestingarýni vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu.

Nánari upplýsingar

Með frumvarpinu eru lögð til heildarlög um fjárfestingarýni vegna þjóðaröryggis og allsherjarreglu. Hugtakið rýni (e. screening) vísar í þessu sambandi til greiningar og mats á því hvort viðskiptaráðstafanir, sem skapa erlendum aðilum eignaraðild, veruleg áhrif eða yfirráð yfir atvinnufyrirtækjum eða fasteignaréttindum hér á landi skapi ógn fyrir þjóðaröryggi eða allsherjarreglu. Tillögur frumvarps þessa standa í samhengi við alþjóðlega þróun á þessu löggjafarsviði, en flest ríki EES og OECD hafa sett löggjöf sambærilega þeirri sem lögð er til með frumvarpinu, þó með mismunandi útfærslum, eins og nánar er rakið í greinargerð með frumvarpsdrögunum.

Meginstef lagareglna um fjárfestingarýni er að samþætta sjónarmið um mikilvægi erlendrar fjárfestingar fyrir efnahagslífið og nauðsyn þess að erlend fjárfesting í þýðingarmiklum innviðum og á öðrum viðkvæmum og samfélagslega mikilvægum sviðum samræmist þjóðaröryggi og allsherjarreglu. Fjárfestingarýni er þannig ekki ætlað að vera takmörkun á erlendri fjárfestingu almennt, heldur er markmiðið að ganga úr skugga um að einstakar erlendar fjárfestingar á tilteknum viðkvæmum samfélagssviðum leiði ekki af sér öryggisógn. Færa má sannfærandi rök fyrir því að fyrirkomulag af þessu tagi sé almennt fallið til að auka traust til erlendra fjárfestinga á samfélagslega mikilvægum sviðum, til hagsbóta fyrir atvinnulífið og samfélagið allt. Þá má með hliðsjón af erlendri réttarþróun á undanförnum árum, þ.m.t. í aðildarríkjum OECD og ESB, leiða rökum að því að reglur um fjárfestingarýni geti nú talist sjálfsagður þáttur í lagaumhverfi ríkja um erlendar fjárfestingar, eins og nánar er rakið í greinargerð með frumvarpsdrögunum.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stjórnskipunar og stjórnsýslu.

postur@for.is