Sjá samtengt mál og hlekk á frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Málið var opið til umsagnar í gáttinni á tímabilinu 07.11.2022–23.11.2022.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Unnið var úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust og niðurstöður samráðsins birtar 14.11.2023.
Helsta breytingin á regluverki Jöfnunarsjóðs verður nýtt líkan sem leysir núverandi tekjujöfnunar-, útgjaldajöfnunar-, fasteignaskatts- og grunnskólaframlög af hólmi.
Stefna stjórnvalda er snýr að Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sem fram kemur í fjármálaætlun 2023-2027, er sú að Jöfnunarsjóður endurspegli breytingar á sveitarstjórnarstiginu og bæti gæði jöfnunarframlaga sjóðsins. Einnig sé þörf á að einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins og bæta þar með heildarsýn yfir starfsemi hans.
Markmið lagasetningarinnar er að styðja ofangreinda stefna. Þau eru eftirfarandi:
1. Að sjóðurinn fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar
2. Að sjóðurinn styðji betur við bakið á millistórum sveitarfélögum sem eru með flóknar útgjaldaþarfir
3. Að í regluverki sjóðsins séu innbyggðir hvatar til sameiningar sveitarfélaga
4. Að regluverkið stuðli enn frekar að sjálfbærni sveitarfélaga
5. Að sjóðurinn styðji áfram við veikari byggðir með sérstökum framlögum
6. Að leiðarljós breytinganna verði einföldun regluverks og aukið gagnsæi
Helsta breytingin verður nýtt einfalt og gagnsætt líkan sem sameinar framangreind framlög Jöfnunarsjóðs í eitt framlag. Nýtt jöfnunarlíkan mun byggja á þremur meginstoðum: jöfnun vegna ólíkra tekjumöguleika, jöfnun vegna ólíkrar útgjaldaþarfar og jöfnun vegna sérstakra áskorana. Mun útreikningur framlaga fara fram í þessari röð og hver meginstoð nýtir útkomu þeirrar sem á undan er sem byrjunarreit.
Til greina kemur að breyta III. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, sem fjallar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Þá kemur einnig til greina að leggja til sérlög sem kveða á um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
Hjálagt sendist umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga um áformaskjalið.
F.h. sambandsins,
Guðjón Bragason
sviðsstjóri lögfræði- og velferðarsviðs
ViðhengiHjálagt er umsögn sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps.
ViðhengiBæjarráð Akureyrarbæjar tekur undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda um frumvarpið.
Umsögn er í eigin nafni og hjálögð í skrá.
ViðhengiMeðfylgjandi er umsögn Skagabyggðar vegna áforma um lagabreytingar um Jöfnunarstjóð sveitarfélaga
ViðhengiÁ 68. fundi byggðaráðs Múlaþings 22. nóvember sl., var gerð eftirfarandi umsögn um breytingu á reglugerð nr. 10882012 um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
„Byggðaráð Múlaþings fagnar þeirri vinnu sem hafin er við vinnslu frumvarps um breytingar á Jöfnunarsjóði sveitarfélaga og styður þær áherslur sem unnið verður samkvæmt er lúta m.a. að betri stuðningi við millistór og fjölkjarna sveitarfélög með flóknar útgjaldaþarfir, hvata til sameiningar sveitarfélaga og einföldun regluverks og aukið gagnsæi.“
ViðhengiMeðfylgjandi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka.
ViðhengiMeðfylgjandi er umsögn Reykjavíkurborgar um áform um lagabreytingar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.
ViðhengiHjálögð er umsögn sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagastrandar.
Alexandra Jóhannesdóttir
sveitarstjóri
ViðhengiUmsögn um áform um breytingar á lagaumhverfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Viðhengi