Samráð fyrirhugað 25.11.2022—01.12.2022
Til umsagnar 25.11.2022—01.12.2022
Niðurstöður í vinnslu frá 01.12.2022
Niðurstöður birtar

Sanngirnisbætur

Mál nr. 235/2022 Birt: 25.11.2022
  • Forsætisráðuneytið
  • Áform um lagasetningu
  • Málefnasvið:
  • Æðsta stjórnsýsla
  • Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála

Niðurstöður í vinnslu

Umsagnarfrestur er liðinn (25.11.2022–01.12.2022). Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Þátttakendum í þessu samráðsferli var þó heimilt að óska eftir því að efni umsagnar og nafn sendanda birtist ekki í gáttinni. Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust.

Málsefni

Lagaumgjörð sem skapar farveg fyrir einstaklinga sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða vegna misgjörða af hálfu opinberra aðila eða einkaaðila á þeirra vegum til að fá greiddar sanngirnisbætur.

Fyrirhugað er að setja heildarlög um sanngirnisbætur þar sem einstaklingar sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða sem ekki fæst bættur á annan hátt vegna illrar meðferðar eða ofbeldis sem þeir hafa orðið fyrir vegna athafna eða athafnaleysis opinberra aðila hjá stofnunum ríkisins eða sveitarfélaga eða af hálfu einkaaðila á grundvelli ákvörðunar eða samnings við opinberan aðila eða samkvæmt opinberu leyfi samkvæmt lögum eiga rétt til greiðslu sanngirnisbóta.

Gert verður ráð fyrir að umsóknir séu sendar til dómsmálaráðuneytisins sem yfirfari umsóknir m.t.t. þess hvort að þær uppfylli lágmarkskröfur. Matsnefndsanngirnisbóta fái síðan umsóknir til meðferðar og gerir tillögur til sanngirnisbótanefndar um það hverjir eigi að fá bætur og hversu háar þær eigi að vera.

Tengd mál

Innsendar umsagnir

Afrita slóð á umsögn

#1 Landssamtökin Þroskahjálp - 30.11.2022

Umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar er í viðhengi.

Viðhengi