Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 16.12.2022–16.1.2023

2

Í vinnslu

  • 17.1.–8.5.2023

3

Samráði lokið

  • 9.5.2023

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-246/2022

Birt: 16.12.2022

Fjöldi umsagna: 1

Annað

Dómsmálaráðuneytið

Dómstólar

Sameining héraðsdómstóla - skýrsla starfshóps

Niðurstöður

Á grundvelli skýrslunnar var unnið lagafrumvarp sem einnig var til umsagnar í Samráðsgátt. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 23. mars 2023.

Málsefni

Lagt er til að átta héraðsdómstólar landsins verði sameinaðir í einn sem verði með starfsstöðvar þar sem héraðsdómstólarnir eru nú staðsettir.

Nánari upplýsingar

Dómsmálaráðherra skipaði hinn 23. mars 2022 starfshóp um sameiningu héraðsdómstólanna og fól honum að taka saman upplýsingar um þau atriði sem huga þyrfti að við sameiningu héraðsdómstólanna í einn. Einnig að koma með tillögur að útfærslu að slíkum breytingum, meta hagkvæmni af sameiningunni og þörf á lagabreytingum.

Starfshópinn skipuðu Sigurður Tómas Magnússon, hæstaréttardómari og formaður stjórnar dómstólasýslunnar og var hann jafnframt formaður, Brynjar Níelsson, lögmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, og Eva Bryndís Helgadóttir lögmaður. Lögð var áhersla á að haft yrði samráð við og aflað upplýsinga hjá dómstjórum, dómurum, aðstoðarmönnum dómara, öðrum starfsmönnum dómstóla og öðrum hagaðilum, þar með talið ákærendum eftir því sem við ætti. Þá var sömuleiðis skipaður samráðshópur sem leitað var álits hjá og upplýstur var um framgang verkefnisins.

Starfshópurinn skilaði af sér skýrslu hinn 12. desember 2022 sem nú er kynnt í Samráðsgátt ásamt tillögum að breytingum á lögum um dómstóla.

Í skýrslunni er lagt til að héraðsdómstólarnir verði sameinaðir í einn undir nafninu Héraðsdómur og að yfirstjórn hans verði staðsett í Reykjavík. Dómstóllinn hafi átta lögbundnar starfsstöðvar á þeim stöðum sem héraðsdómstólar eru nú starfræktir og lögbundinn lágmarksfjölda starfsmanna á hverri starfsstöð. Þannig verði kveðið á um það í lögum um dómstóla að þrír starfsmenn verði að lágmarki starfandi á hverri starfsstöð, þar af að minnsta kosti tveir héraðsdómarar eða einn héraðsdómari og einn dómarafulltrúi.

Lagt er til að dómstjóri Héraðsdóms verði skipaður til fimm ára af stjórn dómstólasýslunnar úr hópi starfandi héraðsdómara með þeim hætti að staðan verði auglýst og héraðsdómurum gefinn kostur á að sækja um. Sama eigi við um skipun varadómstjóra. Lagt er til að dómstólasýslan setji reglur um hvernig staðið skuli að undirbúningi að skipun dómstjóra, þar á meðal um hvaða sjónarmið skuli lögð til grundvallar við mat á hæfni umsækjenda og hvaða sérfræðiaðstoð dómstólasýslan geti sótt sér.

Lagt er til að dómstjóri ákveði fjölda starfsmanna við hverja starfsstöð Héraðsdóms, innan þess ramma sem lög um dómstóla og fjárveitingar setji, og ráði aðra starfsmenn dómsins en héraðsdómara. Af tillögum starfshópsins leiðir að allir héraðsdómarar starfi við sama dómstól og að úthlutun allra mála sem rekin verða í héraði verði á hendi eins dómstjóra. Jafnframt að dómstjóri geti úthlutað málum án tillits til þess hvar dómarar og dómarafulltrúar hafi fasta starfsstöð og án tillits til þess við hvaða starfsstöð málin verði rekin. Þannig skapist svigrúm til þess að útivistarmál af ýmsum toga verði afgreidd á hvaða starfsstöð Héraðsdóms sem er og eftir atvikum önnur mál. Með þessu ætti jafnframt að verða svigrúm til að nýta mannauð á héraðsdómstiginu betur en nú er og eftir atvikum skapa sérhæfingu í tilteknum málaflokkum ef það þykir heppilegt.

Þá gerir starfshópurinn tillögu um að lögfest verði að við Héraðsdóm starfi skrifstofustjóri sem skipaður sé af dómstjóra með sama hætti og mælt er fyrir um í lögum um dómstóla um skrifstofustjóra Hæstaréttar og Landsréttar. Verkefni, hlutverk, staða og hæfniskröfur skrifstofustjóra Héraðsdóms verði sambærilegar því sem mælt er fyrir um vegna skrifstofustjóra hinna dómstiganna.

Enn fremur að starfsheiti löglærðra aðstoðarmanna dómara verði breytt í dómarafulltrúa án þess að breytingar séu gerðar á inntaki starfsins og réttarstöðu þeirra. Þá telur starfshópurinn ástæðu til að við Héraðsdóm verði einnig ráðnir aðrir lögfræðingar til að aðstoða dómara, annast önnur lögfræðileg verkefni sem tengjast stafrænni málsmeðferð og önnur tilfallandi verkefni.

Af tillögum starfshópsins leiðir einnig að óhjákvæmilega að gera þarf nokkrar breytingar á ákvæðum laga um dómstóla er snúa að hlutverki og verkefni dómstólasýslunnar. Þær snúa að því að staða dómstólasýslunnar gagnvart nýjum Héraðsdómi verði að mestu leyti sú sama og verið hefur gagnvart Landsrétti og Hæstarétti. Starfshópurinn leggur auk þess til að dómstólasýslunni verði meðal annars fengnar auknar heimildir til að setja reglur um starfsemi Héraðsdóms, þar á meðal um úthlutun dómsmála.

Starfshópurinn telur mikilvægt að gefinn verði rúmur aðlögunartími frá lögfestingu til gildistöku laganna. Er lagt til að sameining héraðsdómstólanna taki gildi 1. ágúst 2024 en dómstjóri verði skipaður frá 1. mars 2024 til þess meðal annars að undirbúa sameininguna og stofnun Héraðsdóms.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (2)

Umsjónaraðili

Skrifstofa réttarfars og stjórnsýslu

dmr@dmr.is