Tímalína máls
Til umsagnar
16.12.2022–10.1.2023
Í vinnslu
11.1.2023–
Samráði lokið
Mál nr. S-250/2022
Birt: 16.12.2022
Fjöldi umsagna: 9
Áform um lagasetningu
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Orkusjóð
Málsefni
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um Orkusjóð
Nánari upplýsingar
Samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar á Ísland að verða vagga nýrra lausna á grunni auðlinda, þekkingar og staðsetningar. Styðja á við græna atvinnuuppbyggingu og fjárfestingar ásamt því að greiða götu verkefna, m.a. á sviði föngunar, geymslu og förgunar kolefnis, uppbyggingu hringrásarhagkerfis með fjölnýtingu orkustrauma og orkuskipta.
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið rekur tvo sjóði, Orkusjóð og Loftslagssjóð, sem styrkja verkefni sem tengjast orkuskiptum og nýsköpun á sviði loftslagsmála. Þá hefur ráðuneytið veitt styrki til verkefna á málaefnasviði ráðuneytisins sem og styrki til innleiðingar á hringrásarhagkerfinu. Með frumvarpinu er ætlunin að sameina framangreindar styrkveitingar á eina hendi.
Í vinnslu
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Tenging við önnur mál (1)
Umsjónaraðili
urn@urn.is