Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 14.–28.2.2023

2

Í vinnslu

  • 1.3.2023–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-35/2023

Birt: 14.2.2023

Fjöldi umsagna: 6

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir (geymsla koldíoxíðs)

Málsefni

Uppfæra þarf nokkur ákvæði VI. kafla A laganna sem fjallar um geymslu koldíoxíðs í jörðu til að samræma orðalag kaflans við orðalag tilskipunar 2009/31/EB um geymslu koldíoxíðs í jörðu.

Nánari upplýsingar

Um er að ræða breytingar á VI. kafla A sem fjallar um geymslu koldíoxíðs í jörðu í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Breytingarnar eru nauðsynlegar til að samræma orðalag kaflans við orðalag tilskipunar 2009/31/EB um geymslu koldíoxíðs í jörðu og tryggja fullnægjandi innleiðingu tilskipunarinnar í íslensk lög.

Með lögum nr. 12/2021 sem breyttu lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir var tilskipun 2009/31/EB innleidd að fullu í íslenskan rétt. Eftir samþykkt laganna gerði eftirlitsstofnun EFTA (ESA) athugasemdir við notkun orðsins „niðurdæling“ í stað „geymsla“ í lögunum og tjáði að breyta þyrfti orðalaginu svo fullt samræmi væri á milli laganna og tilskipunarinnar. Umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið fór því þess á leit við umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis á síðasta löggjafarþingi að nefndin legði fram frumvarp til laga um tæknilega breytingu á lögum nr. 7/1998 þar sem orðinu „niðurdæling“ var skipt út fyrir orðið „geymsla“ í lögunum. Frumvarpið var samþykkt á Alþingi þann 15. júní 2022, sbr. lög nr. 67/2022.

Síðastliðið sumar bárust frekari ábendingar og athugasemdir frá ESA um að orðalag VI. kafla A í lögunum væri enn ekki í fullu samræmi við orðalag tilskipunar 2009/31/EB. Í frumvarpi þessu eru því lagðar til efnisbreytingar í samræmi við athugasemdir ESA, á nokkrum ákvæðum í VI. kafla A laga nr. 7/1998. Meðal þeirra atriða sem ESA hefur bent á í athugasemdum sínum eru að setja verði skýrari mörk milli umfjöllunar um könnunarleyfi og starfsleyfi sem fjallað er um í 33. gr. c. laganna. ESA hefur einnig bent á að það þurfi að uppfæra orðalag í 1. mgr. 33. gr. g. sem fjallar er um flutning ábyrgðar á geymslusvæði eftir að því hefur verið lokað sem og að skýra verði betur skilyrði fyrir aðgangi þriðja aðila að flutningskerfi og geymslusvæði í 33. gr. h. auk nokkurra annarra atriða.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar

helga.jonsdottir@urn.is