Frumvarpið var lagt fram á Alþingi þann 30. mars 2023. Fjallað er um niðurstöður samráðs í 5. kafla greinargerðarinnar og í meðfylgjandi niðurstöðuskjali.
Málið var opið til umsagnar í gáttinni á tímabilinu 24.02.2023–10.03.2023.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Unnið var úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust og niðurstöður samráðsins birtar 12.06.2023.
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna.
Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum á málefnasviði mennta- og barnamálaráðuneytis í því skyni að samræma löggjöf við lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, og styrkja umgjörð um þjónustu og snemmtækan stuðning í þágu barna. Jafnframt miðar frumvarpið að því að auka vægi réttinda barna og tryggja betra samræmi þeirra lagabálka sem um ræðir við ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins sem lögfestur var árið 2013, sbr. lög nr. 19/2013.
Frá vori 2018 hefur staðið yfir umfangsmikil vinna við breytingar í þágu farsældar barna sem meðal annars hefur falist í víðtækri heildarendurskoðun lagaumhverfisins. Árið 2021 voru samþykkt lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86/2021, sem fela í sér breytta nálgun í þjónustu við börn. Samþykkt laganna og þær breytingar á verklagi sem þar er að finna kalla á endurskoðun annarrar löggjafar þar sem fjallað er um þjónustu í þágu barna og er gert ráð fyrir því að sú vinna fari fram á þriggja til fimm ára innleiðingartímabili laganna.
Frumvarpið er mikilvægur liður í því að styrkja enn frekar umgjörð um þjónustu í þágu barna og stuðla að því að öll börn og foreldrar sem á þurfa að halda hafi aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna taka til allrar þjónustu sem er veitt börnum á ýmsum málefnasviðum mennta- og barnamálaráðuneytis, þ.m.t. í leik-, grunn- og framhaldsskólum, frístundaheimilum og félagsmiðstöðvum. Þá taka lögin einnig til annars skipulags starfs og þjónustu sem veitt er af hálfu annarra aðila, m.a. í íþrótta- og æskulýðsstarfi.
Um þessa starfsemi gilda nokkrir mismunandi lagabálkar, þ.m.t. lög um leikskóla, nr. 90/2008, lög um grunnskóla, nr. 91/2008, lög um framhaldsskóla, nr. 92/2008, íþróttalög, nr. 64/1998 og æskulýðslög, nr. 70/2007, og er markmiðið með frumvarpinu að endurskoða ákvæði þeirra.
Rétt er að taka fram að áformað er að leggja til frekari breytingar á tilvitnuðum lagabálkum í tengslum við fyrirhugaðar lagabreytingar sem tengjast skólaþjónustu og mennta- og barnamálaráðherra áformar að leggja fram á 154. löggjafarþingi.
Athugasemd varðandi þennan hluta laga um grunnskóla;
22. gr. Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:
a. Orðin „sbr. 2. gr. laga um málefni fatlaðs fólks,“ í 2. mgr. falla brott.
b. Í stað orðins „sérþarfir“ tvívegis í 2. mgr. kemur: þarfir.
c. Fyrirsögn greinarinnar verður: Stuðningur í námi.
Hugtakinu sérþarfir er skipt út fyrir þarfir á tveimur stöðum (b). Almennt virðist sem þessu hugtaki sé skipt út fyrir hugtakið stuðningsþarfir og velti ég fyrir mér hvers vegna það er ekki gert í þessari grein amk í seinna skiptið. Myndi vilja sjá þetta endurskoðað.
Umsögn ÖBÍ – réttindasamtaka um um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.).
ViðhengiGóðan dag
Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
f.h. sambandsins
Valgerður Rún
ViðhengiUmsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.)
ViðhengiSjá meðfylgjandi umsögn Reykjavíkurborgar.
ViðhengiUmsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum í þágu barna (samþætting þjónustu, snemmtækur stuðningur o.fl.)
Barnaheill fagna þeim frumvarpsdrögum sem vísað er til og hvetja til samþykktar þess og afgreiðslu á Alþingi.
Barnaheill hvetja til þess að þær lagabreytingar sem verða ef frumvarpið verður að lögum verði rækilega kynntar og innleiddar með fræðslu og stuðningi við starfsfólk skóla.
Samtökin gera ekki efnislegar athugasemdir við frumvarpsdrögin.
Barnaheill vinna að bættum mannréttindum allra barna og hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi í störfum sínum. Samtökin eru áfram boðin og búin að taka þátt í undirbúningi og samráði við mótun breytinga á lögum og framkvæmd samþættingar þjónustu í þágu barna.
ViðhengiUmsögn fyrir hönd UMFÍ: Sjá viðhengi.
Viðhengi