Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 21.3.–11.4.2023

2

Í vinnslu

  • 12.4.–8.5.2023

3

Samráði lokið

  • 9.5.2023

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-74/2023

Birt: 21.3.2023

Fjöldi umsagna: 16

Drög að stefnu

Innviðaráðuneytið

Umhverfismál

Áform um gerð Vegvísis að vistvænum samgöngum til ársins 2030

Niðurstöður

Niðurstöður samráðs vegna áforma um gerð vegvísis að vistvænum samgöngum til ársins 2030 eru samanteknar í meðfylgjandi skjali.

Málsefni

Vegvísir að vistvænum samgöngum á Íslandi til ársins 2030 mun innihalda skilgreindar tímasettar aðgerðir sem miða að því að markmiðum um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda verði náð.

Nánari upplýsingar

Ríkisstjórnin setur loftslagsmál í forgang í stjórnarsáttmála og eru markmið íslenskra stjórnvalda metnaðarfull. Draga á úr losun gróðurhúsalofttegunda um 55% eða meira til ársins 2030 miðað við losun árið 2005. Þá skulu efldar aðgerðir í kolefnisbindingu og landnotkun sem miða að því að ná markmiði um kolefnishlutleysi árið 2040, sbr. 1. gr. laga um loftslagsmál nr. 70/2012.  Árið 2040 skal fullum orkuskiptum náð og þannig skal Ísland verða óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja. Ísland er aðili að rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og þátttakandi í sameiginlegu markmiði Evrópuríkja um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda til ársins 2030 miðað við árið 1990.   

Á árunum 2005 – 2020 var um þriðjungur af losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands vegna samgangna. Framreikningar Umhverfisstofnunar á losun gróðurhúsalofttegunda sýna að frekari aðgerða er þörf til að uppfylla metnaðarfull markmið um samdrátt í losun. Vegvísir um vistvænar samgöngur til 2030 verður því settur fram til að vinna að frekari aðgerðum í samdrætti í losun frá samgöngum til að vinna að því markmiði að Ísland standi við skuldbindingar sínar og uppfylli sjálfstæð markmið.   

Viðfangsefni vegvísis verður orkuskipti í samgöngum, þ.m.t. samgöngutæki, eldsneyti og uppbygging innviða sem og leiðir til að draga úr kolefnisspori vegna uppbyggingar og reksturs samgöngumannvirkja. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni eru höfð að leiðarljósi. 

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa samgangna

irn@irn.is