Samráð fyrirhugað 11.05.2023—25.05.2023
Til umsagnar 11.05.2023—25.05.2023
Niðurstöður í vinnslu frá 25.05.2023
Niðurstöður birtar

Drög að reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 555/2020 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða

Mál nr. 95/2023 Birt: 11.05.2023
  • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
  • Drög að reglugerð
  • Málefnasvið:
  • Markaðseftirlit og neytendamál

Niðurstöður í vinnslu

Umsagnarfrestur er liðinn (11.05.2023–25.05.2023). Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust.

Málsefni

Áformað er að breyta reglugerð nr. 555/2020 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um rekstraraðila sérhæfðra sjóða til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1255.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1255 kveður á um breytingu á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 231/2013 að því er varðar áhættu tengda sjálfbærni og sjálfbærniþætti sem rekstraraðilar sérhæfðra sjóða skulu taka tillit til.