Tímalína máls
Til umsagnar
30.5.–9.6.2023
Í vinnslu
10.6.2023–
Samráði lokið
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-104/2023
Birt: 30.5.2023
Fjöldi umsagna: 0
Drög að reglugerð
Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Leikskólar, grunnskólar, önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og barnamála
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 477/2020 um viðurkenningu á faglegri menntun til starfa hér á landi
Málsefni
Markmið breytingarinnar er innleiðing framkvæmdareglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/907 um námspróf fyrir skíðakennara.
Nánari upplýsingar
Framkvæmdareglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/907 frá 14. mars 2019 um að koma á fót sameiginlegu námsprófi fyrir skíðakennara skv. 49. gr. b í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi hefur verið tekin inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 323/2022 frá 9. desember 2022.
Reglugerðin kemur á fót sameiginlegu prófi fyrir skíðakennara sem á að tryggja viðurkenningu á starfsréttindum þeirra á EES-svæðinu.
Í ljósi þess að gerðin hefur verið tekin inn í EES-samninginn er hér lagt til að hún verði innleidd með breytingarreglugerð við reglugerð nr. 477/2020 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi. Um leið er gerð ein minniháttar breyting á 2. mgr. 17. gr. téðrar reglugerðar, sbr. meðfylgjandi drög að reglugerð.
Í vinnslu
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Skrifstofa framkvæmdar og stjórnsýslu
hvin@hvin.is