Samráð fyrirhugað 01.09.2023—26.09.2023
Til umsagnar 01.09.2023—26.09.2023
Niðurstöður í vinnslu frá 26.09.2023
Niðurstöður birtar

Fjárfestingarkostir viðbótarlífeyrissparnaðar

Mál nr. 162/2023 Birt: 01.09.2023 Síðast uppfært: 02.11.2023
  • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
  • Áform um lagasetningu
  • Málefnasvið:
  • Markaðseftirlit og neytendamál

Niðurstöður í vinnslu

Umsagnarfrestur er liðinn (01.09.2023–26.09.2023). Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir. Niðurstöður samráðsins verða birtar þegar unnið hefur verið úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust.

Málsefni

Aukið valfrelsi í viðbótarlífeyrissparnaði með fjölgun fjárfestingarkosta.

Frumvarpið mun fela í sér tillögur um aukið valfrelsi einstaklinga í viðbótarlífeyrissparnaði á þá leið að einstaklingar geti sjálfir ákveðið fjárfestingarstefnu sparnaðarins og breytingar á henni í samráði við vörsluaðila. Til að ná því markmiði þarf að auka heimildir vörsluaðila viðbótarlífeyrissparnaðar til að bjóða viðskiptavinum sínum að hafa persónulegt val um fjárfestingarstefnu viðbótarlífeyrissparnaðar á þann veg að eigandi slíks lífeyrissparnaðarins geti sjálfur ákveðið fjárfestingar og ávöxtun sparnaðarins.

Innsendar umsagnir

Afrita slóð á umsögn

#1 Rafn Einarsson - 01.09.2023

Ég legg til í það fyrsta að fækka ætti sjóðum um amk. 60% .

Önnur tillaga er að fara sömu leið og Norðmenn, þeas. að á Íslandi verði eingöngu einn lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn.

Rök, rekstrarkostnaður allra lífeyrissjóða er orðin allt of hár þó svo hægt se að sína fram á annað, en sú sýning kemur fra þeim sem verja sitt bæli og er þal. ekki marktæk, en það næðist verulegur sparnaður í því að sameina alla sjóðina í einn, launa og fjármagnskostnaður er orðin nánast óstjórnlegur þar sem engin hefur eftirlit með þeirra eyðslu og fjárfestingum.

Fjármálaeftirlitið er bóla sem engin tekur alvarlega.

Frjálsræði í hvar einstaklingur vill fjárfesta ætti skilyrðislaust að vera til staðar. Það hefur sýnt sig ef tekin eru ca. 20 ár saman að hin frjálsi markaður þar sem fólk hefði/hefur getað sjálft fjárfest sínum lífeyri hefði/ hefur gefið töluvert betur af sér en lífeyrissjóðirnir gefa af sér.

virðingarfyllst

Rafn Einarsson

Húsasmíðameistari

Afrita slóð á umsögn

#2 Hansína María Haraldsdóttir - 01.09.2023

mér hefur lengi þótt ósanngjarnt að þeir sem skulda geti notað viðbótarlífeyrissparnað til að greiða niður skuldir skattfrjálst, en þeir sem ekki skulda greiða fullan skatt ef þeir nota sinn viðbótarsparnað þetta er mismunun og þarf nauðsynlega að leiðrétta

Afrita slóð á umsögn

#3 Alexander Ingi Olsen - 01.09.2023

Heimilið ótamkaraða ráðstöfun séreignasparnaðar til lækkunar á höfuðstól húsnæðislána. Sagan hefur sýnt að niðugreiðsla höfuðstóls húsnæðislána er besti lífeyrissparnaðurinn.

Afrita slóð á umsögn

#4 Samtök fjármálafyrirtækja - 21.09.2023

Meðfylgjandi er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja.

bestu kveðjur,

Jóna Björk

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#5 Bragi Gunnarsson - 22.09.2023

Meðfylgjandi er umsögn Landsbréfa um málið

bestu kveðjur

Bragi G

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#6 Landssamtök lífeyrissjóða - 22.09.2023

Umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#7 Kauphöll Íslands hf. - 22.09.2023

Meðfylgjandi er umsögn Nasdaq á Íslandi um ofangreint frumvarp.

Bestu kveðjur,

Árnína Steinunn Kristjánsdóttir

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#8 Almenni lífeyrissjóðurinn - 22.09.2023

Meðfylgjandi er umsögn Almenna lífeyrissjóðsins.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#9 Arion banki hf. - 22.09.2023

Meðfylgjandi er umsögn samstæðu Arion banka, þ.e. Arion banki hf. (f.h. bankans og Lífeyrisauka) og Stefnir hf., um ofangreind áform.

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#10 Alþýðusamband Íslands - 22.09.2023

Meðfylgjandi er umsögn Alþýðusambands Íslands

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#11 Arnaldur Loftsson - 25.09.2023

Meðfylgjandi er umsögn Frjálsa lífeyrissjóðsins

Viðhengi
Afrita slóð á umsögn

#12 Ari Edwald - 02.11.2023

Sjá viðhengi

Viðhengi