Umsagnarfrestur er 18.09.2023–02.10.2023.
Umsagnir verða birtar jafnóðum og þær berast.
Senda inn umsögn
Frv. um sameiningu Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Ramý er ætlað að styrkja og einfalda starfsemi þessara stofnana og efla starfsstöðvar á landsbyggðinni.
Frumvarpinu er ætlað að styrkja og einfalda starfsemi Náttúrufræðistofnunar Íslands, Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Mývatn (Ramý), stuðla að frekari þekkingaruppbyggingu og nýsköpun og efla starfsstöðvar á landsbyggðinni.
Um er að ræða hluta af áformum um endurskipulagningu stofnana ráðuneytisins þar sem gert er ráð fyrir að til verði þrjár öflugar stofnanir í stað átta. Áform um lagasetningu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í maí 2023, mál nr. 103/2023.
Frumvarpið felur í sér breytingu á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, þar sem gert er ráð fyrir að Náttúrufræðistofnun yfirtaki réttindi og skyldur Landmælinga Íslands og RAMÝ. Gert er ráð fyrir að við sameininguna verði starfsfólk Landmælinga og RAMÝ hluti af hinni sameinuðu stofnunun og er jafnframt lagt til að heiti stofnunarinnar verði framvegis Náttúrufræðistofnun.
Með sameiningunni eru ekki lagðar til breytingar á lögbundnum verkefnum stofnananna, heldur eru eingöngu lagðar til lagabreytingar sem þörf er á til samræmis vegna sameiningarinnar. Lagt er til að fagráð skv. lögum um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu verði lagt af sökum þess að sá tilgangur þess að viðhalda tengslum náttúrurannsóknarstöðvarinnar við Náttúrufræðistofnun Ísland, Hafrannsóknarstofnun og Háskóla Íslands auk sveitarfélagsins, verði ekki fyrir hendi eftir sameininguna. Einnig verði felld niður ákvæði um sérstök setur með sjálfstæðan fjárhag og er það til samræmis við ábendingar Ríkisendurskoðunar, en setrafyrirkomulagið hefur þegar verið lagt af í framkvæmd.
Verði sameiningin að veruleika mun fjöldi starfsfólks í sameinaðri stofnun verða alls 72, sem áfram starfi á núverandi starfsstöðvum stofnananna í Garðabæ, Akranesi, Akureyri, Mývatni og Breiðdalsvík.
Gert er ráð fyrir að Náttúrufræðistofnun taki 1. janúar 2024 við hlutverki, verkefnum, réttindum og skyldum, eignum og skuldbindingum Landmælinga Íslands og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn.
Smelltu hér til að skrá þig inn með Íslykli eða rafrænni auðkenningu.
Ef umsögnin er send fyrir hönd samtaka, fyrirtækis eða stofnunar þarf umboð þaðan, sjá nánar hér.