Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 6.–20.10.2023

2

Í vinnslu

  • 21.10.2023–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-189/2023

Birt: 5.10.2023

Fjöldi umsagna: 1

Drög að reglugerð

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Samgöngu- og fjarskiptamál

Birting upplýsinga úr gagnagrunni almennra fjarskiptaneta

Málsefni

Reglugerð um ramma fyrir opinberra birtingu upplýsinga úr gagnagrunni almennra fjarskiptaneta (GAF) um staðsetningu og tæknilega eiginleika fjarskiptainnviða.

Nánari upplýsingar

Háskóla- iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hefur unnið drög að reglugerð um birtingu upplýsinga úr gagnagrunni almennra fjarskiptaneta (GAF), en í gagnagrunninn eru skráðar upplýsingar um staðsetningu og tæknilega eiginleika almennra fjarskiptaneta. Um gagnagrunn almennra fjarskiptaneta og birtingu upplýsinga úr gagnagrunninum er fjallað í 10. gr. um Fjarskiptastofu nr. 75/2021 og er reglugerðin sett með stoð í b-lið 1. mgr. 30. gr. sömu laga.

Fjarskiptastofa hefur undanfarin ár unnið að uppbyggingu gagnagrunnsins, en hann getur komið að góðum notum fyrir stjórnvöld við stefnumótun í fjarskiptum og tengdum málaflokkum. Einnig hefur nokkuð verið kallað eftir því að upplýsingar um fjarskiptavirki og fjarskiptainnviði séu gerðar aðgengilegar almenningi á undanförnum árum og veitt var heimild til að opna fyrir takmarkaðan aðgang almenning að gagnagrunninum við setningu laga nr. 75/2021, sbr. 5. mgr. 10. gr. laganna.

Markmið reglugerðarinnar er að setja ramma um opinberra birtingu tiltekinna upplýsinga um fjarskiptainnviði úr gagnagrunni almennra fjarskiptaneta. Tilgangur birtingarinnar er að almenningi og öðrum hagaðilum verði aðgengilegar upplýsingar um tegund og gæði fjarskiptatenginga sem eru í boði um land allt. Aðgengi að upplýsingunum er þó takmarkað í þeim tilvikum þar sem það er nauðsynlegt í ljósi öryggis neta og áreiðanleika þeirra, þjóðaröryggis, lýðheilsu eða öryggis almennings, trúnaðarkvaða, réttmætra samkeppnishagsmuna, rekstrar- og viðskiptaleyndarmála og persónuverndar.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumörkunar og alþjóðasamskipta

hvin@hvin.is