Umsagnir sem bárust í samráðsferlinu hafa verið yfirfarnar og viðbrögð við athugasemdum er að finna í meðfylgjandi minnisblaði. Ábendingar sem komið hafa fram gefa í einhverjum tilfellum tilefni til frekari skýringa í greinargerð við frumvarpsdrögin. Ekki eru ástæður til breytinga á sjálfum frumvarpsdrögunum eins og þau voru birt í samráðsgátt. Frágangur frumvarpsins stendur yfir.
Málið var opið til umsagnar í gáttinni á tímabilinu 12.10.2023–22.11.2023.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Unnið var úr þeim ábendingum og athugasemdum sem bárust og niðurstöður samráðsins birtar 08.12.2023.
Drög að frumvarpi til heildarlaga um slit ógjaldfærra opinberra aðila.
Ráðgert er að leggja fram frumvarp sem hefur að geyma almennar reglur um hvernig ljúka megi tilvist tiltekinna ógjaldfærra opinberra aðila með slitum sem um margt svipar til gjaldþrotaskipta. Kveikjan að samningu frumvarpsins er sá fjárhagsvandi sem ÍL-sjóður stendur frammi fyrir. Opinberar stofnanir sem njóta ríkisábyrgðar verða ekki teknar til gjaldþrotaskipta samkvæmt 3. mgr. 5. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl. nema mælt sé á annan veg í lögum og þarf því sérstaka lagaheimild til að koma fram slitum á ÍL-sjóði og uppgjöri skulda hans. Slík lagaheimild er ekki til staðar sem stendur og er helsti tilgangur frumvarpsins að bæta þar úr.
Athugasemdir LOGOS fyrir hönd tuttugu lífeyrissjóða við drög að frumvarpi til laga um slit ógjaldfærra opinberra aðila.
ViðhengiGóðan dag
Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Kv. Flosi H. Sigurðsson
ViðhengiÍ viðhengi er umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða.
ViðhengiMeðfylgjandi er umsögn Samtaka fjármálafyrirtækja um frumvarpsdrögin.
ViðhengiUmsögn send inn af Jónasi Fr. Jónssyni, lögmanni, f.h. Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
ViðhengiMeðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins.
ViðhengiUmsögn Reykjavíkurborgar um drög að frumvarpi til slita ógjaldfærra opinberra aðila.
ViðhengiÍ viðhengi er sameiginleg umsögn ASÍ og BSRB um málið
Viðhengi