Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 31.10.–14.11.2023

2

Í vinnslu

  • 15.11.2023–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-212/2023

Birt: 31.10.2023

Fjöldi umsagna: 6

Drög að frumvarpi til laga

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Frumvarp til laga um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (EES-innleiðing)

Málsefni

Lagt er til að sett verði sérlög um ETS-kerfið ásamt innleiðingu EES gerða sem breyta tilskipun 2003/87/EB um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir vegna herts markmiðs um samdrátt í losun til 2030.

Nánari upplýsingar

Frumvarpið felur í sér innleiðingu þriggja EES-gerða sem gert er ráð fyrir að verði samþykktar af sameiginlegu EES-nefndinni í desember nk. Í gerðunum eru gerðar breytingar á ETS-kerfinu vegna herts markmiðs ESB um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2030.

Þær þrjár EES-gerðir sem hér um ræðir eru:

1) Reglugerð (ESB) 2023/957 sem breytir reglugerð ESB 2015/757 til að gera kleift að fella sjóflutningastarfsemi inn í ETS-kerfi og varðandi vöktun, skýrslugjöf og vottun á losun gróðurhúsalofttegunda og losun frá fleiri tegundum skipa,

2) Tilskipun (ESB) 2023/958 hvað varðar framlag til flugstarfsemi til markmiðs ESB um samdrátt í losun sem hefur áhrif á allt hagkerfið og viðeigandi framkvæmd hnattrænnar markaðstengdrar ráðstöfunar (ETS-kerfi í flugi)

3) Tilskipun (ESB) 2023/959 um breytingu á tilskipun 2003/87/EB um að koma fót kerfi fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda innan ESB og ákvörðun (ESB) 2015/1814 um að koma á fót og starfrækja markaðstöðugleikavarasjóð fyrir kerfi Sambandsins fyrir viðskipti með heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda.

ESB gerir ráð fyrir 62% samdrætti í losun frá þeim geirum sem falla undir ETS-kerfið. Til að því markmiði verði náð verður losunarheimildum í ETS-kerfinu fækkað hraðar, dregið úr endurgjaldslausri úthlutun losunarheimilda, starfsemi sjóflutninga verður felld undir kerfið og nýtt hliðstætt ETS kerfið verður sett á fót, svokallað ETS2-kerfi sem mun ná utan um losun frá byggingum, vegasamgöngum og smærri iðnaði.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um upptöku gerðanna í EES-samninginn mun mun ekki taka gildi fyrr en löggjöf til innleiðingar tekur gildi í Íslandi, Liechtenstein og Noregi.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sjóflutningar verði felldir undir ETS-kerfið frá 1. janúar 2024, ásamt öðrum breytingum sem þurfa að taka gildi um næstu áramót. Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að umfjöllun um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS-kerfið) verði í sérlögum til að auka skýrleika.

Auk frumvarps þessa er gert ráð fyrir framlagningu frumvarps um ETS2-kerfið á vorþingi.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Tenging við önnur mál (1)

Umsjónaraðili

Skrifstofa stefnumótunar og innleiðingar

urn@urn.is