Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 11.12.2023–8.1.2024

2

Í vinnslu

  • 9.1.2024–

Samráði lokið

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-258/2023

Birt: 11.12.2023

Fjöldi umsagna: 13

Drög að reglugerð

Innviðaráðuneytið

Húsnæðis- og skipulagsmál

Drög að reglugerð um merki fasteigna

Málsefni

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs drög að reglugerð um merki fasteigna sem samin eru með stoð í 6. gr. k. laga um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001.Vakin er athygli á stuttum umsagnarfresti!

Nánari upplýsingar

Þann 1. janúar 2024 tekur gildi nýr kafli í lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 sem fjallar um merki fasteigna en ákvæði hans leysa af hólmi ákvæði laga um landamerki sem falla úr gildi. Samkvæmt honum skal ráðherra setja nánari ákvæði um framkvæmd laganna með reglugerð en drög að henni eru nú birt til samráð.

Í reglugerðinni er í fyrsta lagi fjallað um skyldu eigenda fasteigna til þess að láta gera merki um fasteignir sínar. Í því felst að liggi ekki fyrir þinglýst og glögg merki eða skýr afmörkun í samræmi við gildandi lög er afmörkun fór fram þá beri eigendum að gera merkjalýsingu um fasteignir sínar. Þá ber eigendum að viðhalda merkjum fasteigna sinna og láta gera nýja merkjalýsingu í hvert sinn sem ný fasteign er stofnuð eða þegar breytingar verða á merkjum fasteignar s.s. með uppskiptingu eða þegar hún er sameinuð annarri.

Í öðru lagi er í reglugerðinni fjallað um merkjalýsingar, tilgang þeirra, efni og hvernig þær skulu útbúnar. Þá kemur fram á hvaða gögnum þær skulu byggja og hvernig þær skulu samþykktar. Þá er einnig fjallað um hvernig skuli skrá stærð fasteigna á grundvelli merkjalýsinga, sérstaklega með tilliti til þess þegar eignir eiga land að vatni eða sjó eða þegar fasteign fylgir eignarhlutdeild í óskiptu landi. Er þar einnig fjallað um mælingar landa og lóða og hvaða kröfur merki þurfi að uppfylla til þess að teljast glögg í skilningi laganna.

Í þriðja lagi er fjallað um merkjalýsendur en samkvæmt lögunum mega þeir einir gera merkjalýsingar sem fengið hafa til þess leyfi ráðherra og staðist próf. Í reglugerðinni er nánar fjallað um þær kröfur sem gerðar eru til merkjalýsenda, námskeiðahald, útgáfu leyfis og afturköllun þess. Þá er fjallað um hlutverk merkjalýsenda og þóknun þeirra.

Að lokum er að finna ákvæði til bráðabirgða um tímabundna heimild þeirra sem hafa starfað við stofnun og skráningu fasteigna og þeirra sem hafa starfað við að gera landamerkjalýsingar til þess að gera merkjalýsingar þar til þeir hafa sótt námskeið og fengið útgefið leyfi ráðherra sem merkjalýsendur samkvæmt reglugerðinni.

Í vinnslu

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Boð um þátttöku (20)

Umsjónaraðili

Skrifstofa húsnæðis- og skipulagsmála

skuli.gunnsteinsson@irn.is