Tímalína máls
Til umsagnar
18.6.–10.9.2018
Í vinnslu
11.2018–15.9.2021
Samráði lokið
16.9.2021
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-65/2018
Birt: 11.6.2018
Fjöldi umsagna: 1
Drög að reglugerð
Innviðaráðuneytið
Samgöngu- og fjarskiptamál
Starfsemi skoðunarstofa skipa
Niðurstöður
Ákveðið var að setja ekki reglugerðina að sinni. Alþingi hefur nú samþykkt ný heildarlög um skip, skipalög nr. 66/2021, sem snúa m.a. að starfsemi skoðunarstofa. Unnið er að endurskoðun tiltekinna reglugerða sem byggja á þessum lögum og kann reglugerð þessi að vera tekin upp að nýju í þeirri vinnu.
Málsefni
Með drögum þessum er lagt til að sett verði ný heildarreglugerð um starfsemi skoðunarstofa skipa.
Nánari upplýsingar
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur, í samráði við Samgöngustofu, unnið drög að reglugerð um starfsemi skoðunarstofa skipa. Um er að ræða nýja heildarreglugerð sem kemur í stað reglugerðar nr. 94/2004, um starfshætti faggiltra skoðunarstofa skipa og búnaðar, með síðari breytingum.
Drögin byggja á tillögum sem Samgöngustofa hefur unnið í samráði við faggiltar skoðunarstofur og Einkaleyfastofu.
Helstu breytingarnar sem lagðar eru til eru eftirfarandi:
- Breytt gildissvið: Í stað þess að mælt sé fyrir um hvaða skipum skoðunarstofum er heimilt að skoða í 1. gr. komi sá listi fram í auglýsingu sem Samgöngustofa gefur út í Stjórnartíðindum.
- Breytt hugtakanotkun: Fallið verði frá því að tala um „faggiltar skoðunarstofur" og þess í stað tekið upp hugtakið „skoðunarstofur". Ekki er þó um efnislega breytingu að ræða enda er áfram gert ráð fyrir að skoðunarstofur hljóti faggildingu í samræmi við staðla og lög um faggildingu, o.fl.
- Skoðun á búnaði: Fallið verði frá svokölluðum A- og B-faggildingum. Þess í stað verði sett sérstök reglugerð um þjónustuaðila skipsbúnaðar.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti
postur@srn.is