Til umsagnar
20.6.–20.8.2018
Í vinnslu
21.8.2018–13.1.2019
Samráði lokið
14.1.2019
Mál nr. S-77/2018
Birt: 20.6.2018
Fjöldi umsagna: 3
Drög að reglugerð
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið
Örorka og málefni fatlaðs fólks
Alls bárust fimm umsagnir, þrjár í samráðsgátt og tvær í tölvupósti til ráðuneytis. Tekið var tillit til athugasemda eftir atvikum. Reglugerðin hefur verið birt á undir númerinu 1250/2018 https://www.reglugerd.is/reglugerdir/eftir-raduneytum/velferdarraduneyti/nr/21371
Velferðarráðuneytið óskar eftir umsögnum um reglugerð um notendastýrða persónulega aðstoð skv. lögum nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Samhliða gildistöku laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, er stefnt að birtingu reglugerða með stoð í lögunum. Meðal þeirra er reglugerð um notendastýrða persónulega aðstoð. Velferðarráðuneytið óskar eftir umsögum um drög að reglugerðinni sem unnin var í samráði við hagsmunaaðila.
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Skrifstofa félagsþjónustu
postur@vel.is