Tímalína máls
Til umsagnar
2.7.–29.8.2018
Í vinnslu
30.8.–25.10.2018
Samráði lokið
26.10.2018
Skjöl til samráðs
Mál nr. S-89/2018
Birt: 3.7.2018
Fjöldi umsagna: 7
Annað
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfismál
Drög að aðgerðaáætlun um Árósasamninginn
Niðurstöður
Umsagnarferli um drög að aðgerðaáætlun um Árósasamninginn lauk 29. ágúst 2018. Alls bárust 7 umsagnir. Farið var yfir athugasemdirnar og tekið tillit til þeirra eftir atvikum.
Málsefni
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að aðgerðaráætlun um Árósasamninginn.
Nánari upplýsingar
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að aðgerðaráætlun um Árósasamninginn.
Árósasamningurinn var fullgiltur á Íslandi 2011 en samningurinn leggur þær skyldur á aðildarríkin að tryggja almenningi aðgengi að upplýsingum um umhverfismál, að geta haft áhrif á ákvarðanatöku sem snertir umhverfið og geta borið ákvarðanir er snerta umhverfið undir óháða úrskurðaraðila.
Aðildarríki Árósasamningsins skila reglulega aðildarríkjaskýrslu til skrifstofu samningsins þar sem farið er yfir stöðu innleiðingar á ákvæðum samningsins. Ísland hefur í tvígang skilað slíkri skýrslu, árin 2014 og 2017. Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kemur fram að endurskoða skuli á fyrri hluta kjörtímabilsins ákvæði um aðgang samtaka almennings að ákvörðunum á sviði umhverfismála. Markmiðið er að tryggja aðkomu almennings á fyrri stigum leyfisveitingarferlis svo málsmeðferð geti orðið skilvirkari án þess að gengið sé á þennan rétt. Jafnframt segir að þjóðréttarskuldbindingum Íslands samkvæmt Árósasamningnum skuli komið til framkvæmda. Í ljósi framangreinds og þess að nú eru sjö ár liðin frá því að samningurinn tók gildi hér á landi er tímabært að fara yfir hvernig til hefur tekist.
Af þessu tilefni hafa í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu verið unnin drög að aðgerðaráætlun um eftirfylgni landsskýrslna Íslands um innleiðingu Árósasamningsins og ákvæðum stjórnarsáttmálans um þetta málefni. Drögin innihalda áherslur á fjórum sviðum og alls þrettán tillögur að aðgerðum. Sérstök áhersla er lögð á aðgerðir um aukna og bætta þátttöku almennings og umhverfisverndarsamtaka snemma í ferli ákvarðanatöku um skipulag og framkvæmdir sem og aðgerðir er tengjast réttlátri málsmeðferð í málum er varða umhverfið.
Umsögnum um aðgerðaáætlunina skal skilað í samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 29. ágúst næstkomandi.
Boðið verður upp á samráðsfund um aðgerðaráætlunina miðvikudaginn 15. ágúst kl. 13 í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig til þátttöku á fundinn með því að senda póst á postur@uar.is.
Samráði lokið
Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.
Umsjónaraðili
Laufey Helga Guðmundsdóttir
postur@uar.is