Tímalína máls

1

Til umsagnar

  • 5.7.–29.8.2018

2

Í vinnslu

  • 30.8.–29.10.2018

3

Samráði lokið

  • 30.10.2018

Skjöl til samráðs

Mál nr. S-90/2018

Birt: 3.7.2018

Fjöldi umsagna: 2

Drög að stefnu

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Umhverfismál

Drög að viðauka við úrgangsforvarnarstefnuna Saman gegn sóun

Niðurstöður

Umsagnarferli um drög að viðauka við úrgangsforvarnarstefnuna stóð yfir frá 5. júlí til 29. ágúst sl. Fjórar umsagnir um drögin bárust og var tekið til tillit til þeirra eins og hægt var við lokafrágang viðaukans.

Málsefni

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að viðauka við úrgangsforvarnarstefnuna Saman gegn sóun.

Nánari upplýsingar

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir umsögnum um drög að viðauka við úrgangsforvarnarstefnuna Saman gegn sóun.

Umhverfis- og auðlindaráðherra gaf á árinu 2016 út stefnu Íslands um úrgangsforvarnir sem ber heitið Saman gegn sóun. Stefnan gildir árin 2016-2027 og er megináhersla þar lögð á níu flokka; matvæli, plast, textíll, raftæki, grænar byggingar og pappír. Þá verður unnið til lengri tíma með aukaafurðir frá vinnslu kjöts og fisks, drykkjarvöruumbúðir og að draga úr myndun úrgangs frá stóriðju.

Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert athugasemdir við stefnu Íslands um úrgangsforvarnir vegna skorts á mælanlegum mælikvörðum og setningu markmiða til að meta þróun ráðstafana stefnunnar og er þar vísað sérstaklega til 3. mgr. 29. gr. rammatilskipunar 2008/98/EB um úrgang. Vegna þessa hefur Umhverfisstofnun, að beiðni ráðuneytisins, útbúið tillögu að viðauka við úrgangsforvarnarstefnuna er lýtur að setningu mælikvarða og markmiða fyrir plast, textíl, aukaafurðir frá vinnslu kjöts og fisks, drykkjarvöruumbúðir og ál- og kísilmálmframleiðslu.

Umsögnum um viðaukann skal skilað í samráðsgátt Stjórnarráðsins eigi síðar en 17. ágúst næstkomandi. Umsagnarfrestur hefur verið framlengdur til og með 29. ágúst nk.

Samráði lokið

Umsagnir voru birtar jafnóðum og þær bárust. Skoða umsagnir.

Umsjónaraðili

Laufey Helga Guðmundsdóttir

postur@uar.is